Markaðir og málverk
Sunnudagur 4. mars
Allir mættir í morgunmat, þetta er árrisult lið sem hefur mikið að gera við að vera túristar. Í dag var skipt liði. Einn hópur hélt á vit almenningssamgöngukerfis Istanbúl, fór með lest, sporvagni og strætisvagni til Ortoköy. Það er þorp við enda Bosporusbrúarinnar. Þar er skemmtilegur útimarkaður á sunnudögum.
Þarna var að sjá mikið af sama skrani og fæst í miðbænum en innan um var fólk að selja sitt eigið handverk. Eftir hangs á markaðnum var tekinn strætó og sporvagn á Istanbul Modern, nútímalistasafn Istanbúl. Safnið var opnað 2005 og þar er mjög skemmtileg sýning um þróun tyrkneska málverksins frá 1900 til dagsins í dag. Einnig var þarna ljósmyndasýning og myndbandasýning. Þegar allir voru orðnir þreyttir á að vera menningarlegir var haldið til baka með sporvagninum. Þar fóru sumir að leita að mat en aðrir heim á hótel. Afgangurinn af hópnum deildist upp. Alvöru innkaupakonurnar héldu áfram kortanotkun sinni, aðrir voru rúmlatir og sumir skoðuðu sig um í bænum. Þó hittust allir um tvöleytið og fóru í skemmtisiglingu upp Bosporus. Þar var kallt og rigning. Þegar komið var til baka á hótelið vour allir latir og ákváðu að borða á veitingahúsinu á hótelinu. Áttum þar saman notalega kvöldstund þar sem fólk rakti ævintýr sín og sagðar voru sögur af sérkennilegum mönnum úr Aðalvík og Aðaldal.

1 Comments:
"Þjóðhildur" ertu eitthvað að slá slöku við í blogginu... ég bíð spennt eftir framhaldi á ferðasögunni??
Veit að það er mikið að gera á öllum vígstöðvum, en "plís" ekki hætta
kveðja Bára klára (hm hm)
By
Nafnlaus, at 18 mars, 2007 21:10
Skrifa ummæli
<< Home