Istanbul 2007

22 september 2006

Skemmtiferð fyrir konur með greiðslukort til Istanbúl í Tyrklandi í febrúar eða mars 2007


Heimsklúbbur Grundarsystra hefur tekið til starfa. Tilgangur hans er að spilla vinum okkar og kynna þá fyrir skemmtilegum stöðum sem við höfum heimsótt.
En það er ekki nóg að sitja heima og bulla, nú þarf að kanna áhugann hjá ykkur. Við gætum hugsað okkur 12-16 manna hóp af skemmtilegu samferðafólki og af því við þekkjum bara skemmtilegt fólk ætti að vera auðvelt að finna það. Til að létta ykkur ákvarðanir er rétt að taka strax fram að það má taka með burðarkarla.
Okkur finnst Istanbúl í Tyrklandi frábær borg, því hún er alls ekki bara heimaborg Halims Al. Þar mætast Evrópa og Asía og því er þetta eina stórborgin í veröldinni, sem er í tveimur heimsálfum. Þar mætist líka evrópsk og austurlensk menning, og borgin hefur verið höfuðborg bæði kristins og múslímsks heimsveldis. Þar er að finna margar minjar um horfna tíma, sem setja svip á borgina. Istanbúl hefur líka lengi verið miðstöð verslunar á mótum Svartahafs og Miðjarðarhafs. Þar er hægt að kaupa flest sem hugurinn girnist, gull, reykelsi og myrru, sérsaumaða leðurjakka, tyrknesk teppi, gardínur, marmara og varahluti í Mercedes Benz. Þar fást líka fjölbreytt krydd, te og merkjavara af ýmsu tagi með misföstum merkjum. Tyrkneskir sölumenn eru líka sérlega skemmtilegir og allir þurfa að prófa að drekka með þeim te á meðan prúttað er um endanlegt verð.
Það eru líka ýmsir möguleikar á afþreygingu fyrir burðarkarla, td. að sjá leik í Tyrkneska boltanum (ef Besiktas eða Galatasaray eiga heimaleik), magadans, tyrkneskt bað (til að endurnæra þá fyrir áframhaldandi burð) eða rakstur og hársnyrtingu hjá tyrkneskum rakara.
Þetta eru allt saman hugmyndir og meðan þið hugsið málið hvort ykkur langar í aðeins öðruvísi borgarferð, ætlum við að athuga nánar verð og ferðatilhögun. Ef þetta er eitthvað sem þið hefðuð áhuga á væri gott að heyra í ykkur á næstu 2-3 vikum og hvaða tími ykkur finnst heppilegur.
Bestu kveðjur, Gunna og Svava.


Drög að ferðaáætlun (verð er byggt á mjög óformlegri könnun á netinu):

Þrír möguleikar á tímasetningu:
22. til 27. febrúar 2007.
1. til 6. mars 2007.
8. til 13 mars 2007.

Flug: Til að komast til Istanbúl þarf að millilenda í t.d. London eða Kaupmannahöfn. Flugtími frá London er um 4 tímar. Verðhugmynd 50 til 55 þúsund á mann.
Hótel: 3-4 stjörnu hótel, helst staðsett í gamla hluta borgarinnar, til að hægt sé að ganga auðveldlega á markverða staði og í verslanir. Verð 20-50 evrur nóttin á mann í tveggja manna herbergi, sem er undir 25 þúsund á mann fyrir 5 nætur.
Samgöngur: Sporvagnar og fullt af gulum ódýrum leigubílum.

Fimmtudagur: Flug Keflavík – ? – Istanbúl. Akstur á hótel og vonandi einhver kvöldverður.
Föstudagur: Vaknað við bænaköll úr nálægri mosku. Létt ganga fá hóteli til að kynna helstu kennileiti í gamla hluta borgarinnar. Skoðunarferð í neðanjarðarvatnsveitu, Ægissif og Bláu moskuna. Eftir hádegisverð er mögulegt að skipta liði og halda á vit kaupahéðnanna.
Laugardagur: Höll tyrkjasoldáns og kvennabúr. Frjáls tími eftir hádegi.
Sunnudagur: Sigling á Bosporus. Eftir hádegi verður farið í nýrri hluta borgarinnar.
Mánudagur: Frjáls tími til að safna saman öllum pöntunum.
Þriðjudagur: Akstur á flugvöll. Flug Istanbúl - ? – Keflavík