Istanbul 2007

19 mars 2007

Rútuferð til Asíu

Mánudagur 5. mars 2007
Dagurinn tekinn snemma því við vorum búin að leigja okkur rútu og leiðsögumann til að fara í skemmtiferð út fyrir borgina. Héldum til borgar sem heitir Bursa sem er um 300 km suður með Marmarahafinu Asíumegin. Okkur mætti snaggaralegur leiðsögumaður sem talaði ágætis ensku. Hann var að vísu nærri raddlaus, hafði aðeins misst sig á leik Besiktas - Galatasaray kvöldið áður. Héldum sem leið liggur yfir Bosphorus-brúna til Asíu-hluta Istanbúl. Við vorum á móti umferðinni því helstu íbúðarhverfin eru Asíumegin við sundið en vinnustaðirnir eru flestir í Evrópuhlutanum. Ókum eftir ágætis hraðbraut gegnum mörg háhýsahverfi. Komumst út úr borginni og héldum að ferjustað yfir fjörð einn sem gegnur inn í landið út úr Marmarahafinu. Við komum skrensandi í kappaakstri við annan bíl og leiðsögumaðurinn okkar stökk út og átti fjörugar samræður við ferjumennina. Það hafði í för með sér að einum pallbíl var hent aftur í land og við ókum um borð. Bílstjórinn sem hafði verið í kapp við okkur stóð eftir frekar óánægður. Ferjan tók um hálftíma og við fórum aftur af stað. Á því svæði voru upptök jarðskjálftans sem skók Tyrkland árið 1999. Bæirnir á þessu svæði hrundu að stórum hluta. En nú er búið að endurbyggja mikið og fólkið komið aftur. Þarna voru margar garðplöntustöðvar og mikið ræktað af apríkósum og eplum. Einnig ókum við framhjá óteljandi ólívutrjám. Komum til Bursa um hálf tólf. Fórum þar að kláfferju sem lá upp á hæsta fjallið þarna í kring. Hækkuðum okkur um rúma 1000 metra. Eftir því sem ofar dró þéttist þokan og þegar við komum á útsýnisstaðinn sáum við varla handa okkar skil. Snjór var á jörðu og hjónin í Reykjakoti bjuggu til snjókerlingu. Tókum hópmynd og biðum svo eftir næstu ferju niður. Það var samt nokkuð gaman að koma niður aftur og sjá yfir bæinn. Þessu næst fórum við að borða hádegismat. Fengum kebab, ekkert óvænt þar. Að matnum loknum skoðuðum við mosku þar rétt hjá. Þessi moska er kölluð græna moskan sökum þess að hún er skreytt að innan með sérkennilega grænum mósaíkflísum. Við fórum þessu næst í mjög stóra minjagripaverslun. Þar var allt á föstu verði og verðið helmingur á við það á Grand Bazar í Istanbul. Flestir keyptu eitthvað fallegt, hversu gagnlegt er annað mál. Þessu næst fórum við að grafhýsi fyrstu Ottoman soldánanna. En Bursa er þekktust fyrir að hafa verið höfuðborg Ottoman-veldisins áður en tyrkirnir náðu Istanbúl. Þarna er líka útsýni yfir bæinn. Bursa er einnig þekkt fyrir að vera helsti silkiframleiðslubær Tyrklands og þar er að finna glæsilegan silkimarkað með mörgum frábærum búðum. Okkur var auðvitað sleppt út til að skoða silki og sumir létu freistast. Að verslunarferðinni lokinni var haldið af stað til baka til Istanbul. Stoppuðum í vegasjoppu á leiðinni og sumir keyptu sér mikið af ólívum. Bílstjórinn sýndi og sannaði að tyrkir eru með djörfustu ökumönnum í heimi, enda skilaði hann okkur heim á hótel á vandkvæða. Voru allir mjög ánægðir með góðan dag í annarri heimsálfu.

1 Comments:

  • Já nú erum við að tala samna "Þjóða"
    mín, þú ert svakalega dugleg að setja þetta í letur og átt hrós og þakkir skilið fyrir framtakið. Það verður ekki leiðinlegt að rifja upp ferðasögur á elló, jú nó... kveðja bm

    By Anonymous Nafnlaus, at 19 mars, 2007 18:30  

Skrifa ummæli

<< Home